Friðrik Ómar blæs til veislu

Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar verður fertugur á árinu og ætlar af því tilefni að halda tónleika í Eldborgar sal Hörpu.

„Í tilefni af fertugs afmælinu mínu þann 4. október nk. ætla ég að stíga á svið í Eldborg ásamt hópi vina og samstarfsmanna og skauta í gegnum efnisskrá sem ég hef valið sérstaklega að þessu tilefni. Ég ætla að hleypa söngvaranum út með dassi af tónleikahaldaranum og fá til mín marga gesti sem ég hef verið svo lánsamur að kynnast og vinna með í gegnum tíðina. Þá má ekki gleyma hljómsveit Rigg viðburða, sem er mín uppáhalds sveit. Eins þætti mér virkilega gaman að fylla salinn af fólki sem hefur fylgt mér í blíðu og stríðu á þessum 25 árum sem ég hef staðið á sviði,“ segir í tilkynningu frá honum sjálfum.

Miðasala hefst föstudaginn 10. september kl. 12:00 á tix.is
https://www.harpa.is/fridrik-omar-40-ara

Auglýsing

læk

Instagram