Fyrirsætan Chrissy Teigen og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn John Legend, greindu frá því í ágúst að þau ættu von á sínu þriðja barni.
Fyrir nokkrum dögum byrjaði að blæða hjá Teigen og hún var flutt á sjúkrahús. Hún greinir frá því í færslu á Instagram að þau hafi misst fóstrið.
,,Við erum í áfalli og finnum fyrir djúpum sársauka, sársauka sem við höfum aldrei fundið fyrir áður,“ skrifar Teigen. Hún segir ástæðuna fyrir fósturmissinum vera mikla blæðingu sem ekki tókst að stöðva.
Hún skrifar einnig að þau hafi ekki verið vön að finna nöfn á börnin sín áður en þau fæðast en af einhverjum ástæðum hafi hún verið farin að kalla þetta litla barn Jack.
,,Hann verður alltaf Jack í okkar huga. Hann barðist fyrir því að verða hluti af fjölskyldunni okkar og hann verður það, að eiliífu.“
Tónlistarmaðurinn John Legend og fyrirsætan Chrissy Teigen, eiga von á sínu þriðja barni. Fyrir eiga þau fjögurra ára gamla stelpu, Luna, og tveggja ára...
Götuljósmyndarinn Anthimos Ntagas tók myndirnar hér fyrir neðan - og það verður að viðurkennast að þær eru ansi vel tímasettar hjá honum.
Það er allavegana...
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Eliza Reid forsetafrú halda í dag til Edinborgar. Markmið ferðarinnar er að styrkja enn frekar vinabönd Íslendinga og...
Julien Tabet er franskur Photoshop snillingur sem hefur gaman að því að gera ótrúlegar myndir.
Hann ímyndaði sér hvernig dýrin hegða sér þegar við erum...
Uber bílstjórar eru yfirleitt ekki að skutla viðskiptavinum á 70 milljón króna Lamborghini sportbílum. Þessi vildi sjá viðbrögðin ef hann myndi mæta á 800...
Þeir sem héldu að Pokemon-samfélagið væri lítill og afmarkaður hópur ungmenna sem gengu um götu Reykjavíkurborgar að leita að fígúrum í snjallsímatölvuleik höfðu vægt...