Halla Bergþóra nýr lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Höllu Bergþóru Björnsdóttur í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 11. maí næstkomandi. Alls fjórir sóttu um embættið og var Halla Bergþóra metin hæfust umsækjenda af hæfnisnefnd.

Halla Bergþóra er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti lögreglustjórans á Norðurlandi Eystra frá árinu 2015. Þar áður gegndi hún embætti sýslumanns á Akranesi frá árinu 2009.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins

Auglýsing

læk

Instagram