Háskólabíó opnar aftur!

Háskólabíó opnar aftur í dag síðan húsinu var lokað í lok mars vegna fjöldatakmarkanna.

Kvikmyndahús Senu bjóða upp á sjálfvirkt sætakerfi þar sem hægt er að velja sér sæti og kerfið sér um að taka frá sæti í kringum þau sem bóka saman til að tryggja fjarlægðarmörk. Með þessu geta gestir valið sitt sæti og mætt í rólegheit á sýningu.

Háskólabíó mun halda áfram að bjóða upp á hlélausar sýningar, og opnar með splunkunýja kvikmynd: Bill & Ted Face the Music.

Ásamt Bill & Ted verða sýningar á Ömmu Hófí og Ellu Bellu Bingó. Hægt er að skoða sýningartímana hér:
Smárabíó(háskólabíó

Auglýsing

læk

Instagram