today-is-a-good-day

Heppinn áskrifandi var einn með hinn al-íslenska þriðja vinning

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni í Lottó, en heppinn áskrifandi var einn með hinn al-íslenska þriðja vinning og fær hann í sinn hlut rúmlega 1,8 milljón kr.

Einn var með allar Jókertölurnar í réttri röð og hlýtur því 1. vinning sem er 2 milljónir. Miðinn góði er í áskrift. Þrír miðahafar voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Tveir miðanna eru í áskrift en hinn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni.

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 6.966

Auglýsing

læk

Instagram