Heppinn miðaeigandi hlýtur 2 milljónir

Hvorki 1., 2. né 3. vinningur gengu út þessa vikuna í Lottó en tveir skiptu með sér al-íslenskum 4. vinningi og fær hvor þeirra rúmlega 250 þúsund. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.

Einn var með allar Jókertölurnar í réttri röð og fær hann því 1. vinning sem hljóðar upp á 2 milljónir króna. Miðinn er í áskrift.  Þá voru fjórir með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver, tveir miðanna eru í áskrift og tveir voru keyptir á heimasíðunni lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram