Heppinn miðaeigandi vann 5 milljónir króna

Um 3.380 einstaklingar skiptu með sér 101 milljón króna í Happdrætti Háskóla Íslands þegar dregið var í aðalútdrætti happdrættisins í gærkvöldi.

Einn heppinn miðaeigandi vann 5 milljónir króna, sjö miðaeig­end­ur unnu eina millj­ón króna og tólf fengu hálfa millj­ón króna í sinn hlut.

Svo­kölluð millj­óna­velta gekk ekki út að þessu sinni verður hún 40 millj­ón­ir króna í októ­ber þegar dregið verður næst.

Auglýsing

læk

Instagram