today-is-a-good-day

Ingó stýrir Brekkusöngnum / Streymt heim í stofu í samstarfi við Senu live

Ingó mun stýra Brekkusöngnum í ár en hann hefur stýrt einstakri stemningu í Herjólfsdal frá árinu 2013 og mega Þjóðhátíðargestir því leyfa sér að hlakka extra mikið til. Einnig stígur hann á svið á laugardagskvöldinu þar sem hann ásamt hljómsveit sinni flytur Takk fyrir mig, hið gríðarlega vinsæla Þjóðhátíðarlag, því ekki gafst tækifæri til þess í fyrra. 
 
Boðið verður upp á lifandi streymi í samvinnu við Senu live frá Brekkusöngnum í fyrsta skipti og geta landsmenn því upplifað Brekkusönginn heima í stofu í gegnum netið eða myndlykla Vodafone og Símans: https://senalive.is/vidburdir/brekkusongur/
Emmsjé Gauti, Aldamótatónleikarnir, FM95Blö, DJ Muscleboy og Ingó skemmta á stóra sviðinu í ár ásamt því að fleiri listamenn verða staðfestir á næstu dögum. 
 
Forsalan á Þjóðhátíð í Eyjum gengur gríðarlega vel og nú hefur Þjóðhátíðarnefnd brugðist við gríðarlegri eftirspurn með því að setja ferðir með Gamla Herjólfi í sölu en hann mun sigla föstudag og mánudag á hátíðina í ár – í það minnsta tvær ferðir á föstudegi og þrjár á mánudegi – miðar í þessar ferðir fara í sölu á dalurinn.is þriðjudaginn 6.júlí kl.9:00. Gott fyrir áhugasama að vera klára á slaginu því síðast hrundi miðasölukerfið!
Auglýsing

læk

Instagram