Íslendingur með 3. vinning!

Enginn var með allar aðaltölurnar auk stjörnutalnanna að þessu sinni í EuroJackpot og flyst því vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. Sextán miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 22,7 milljónir. Miðarnir voru keyptir í Eistlandi, tveir í Ungverjalandi og þrettán í Þýskalandi.

Sautján miðahafar skiptu með sér 3. vinningi og þar af var einn heppinn Íslendingur! Fá þeir rúmar 9,5 milljónir hver. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Eistlandi, Svíþjóð, Finnlandi, tólf í Þýskalandi og á Íslandi var miðinn keyptur í N1, Kaupvangi 5 á Egilsstöðum.

Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Báðir miðarnir voru keyptir á heimasíðunni lotto.is.

Auglýsing

læk

Instagram