Íslenska kvikmyndin Dýrið hlaut verðlaun í Cannes

Íslenska kvikmyndin Dýrið hlaut um helgina „Prize of Originality“ verðlaunin í Un Certain Regard keppninni, sem er hluti af aðaldagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Svo sannarlega magnaður árangur að fá verðlaun fyrir frumleika eftir stórkostlega vel heppnaða heimsfrumsýningu í Cannes, þar sem erlendir fjölmiðlar hafa keppst við að ausa myndina lofi.

Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. 
 

Myndin var tekin upp í Hörgársveit. Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón.

 
Með aðalhlutverk fer sænska leikkonan Noomi Rapace, en hún bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta aðalhlutverk hennar á íslensku. Auk hennar fer Hilmir Snær Guðnason með aðalhlutverk.
 
Dýrið verður frumsýnd í september hér á landi. 
Auglýsing

læk

Instagram