today-is-a-good-day

Jarðarförin hans Ladda sýnd á næsta ári

Laddi mun leika í nýrri sjónvarpsseríu sem er væntanleg í Sjónvarp Símans á næsta ári. Tökur á þáttunum hefjast í Hafnarfirði í  nóvember. Þættirnir heita Jarðarförin mín.

Jarðarförin mín ljúfsár en alvörugefin grínsería um einstakling sem leikinn er af Ladda.  Hann greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun. Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skildi.

Nú eru tvær vikur áður en hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin gala jarðarför og vera sjálfur viðstaddur. Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.

Jón Gunnar Geirdal fékk hugmyndina að þáttunum en ásamt honum skrifa þau Kristófer Dignus, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, Sólmundur Hólm, Baldvin Zophoniasson og Ragnar Eyþórsson handrit þáttanna. Kristófer Dignus mun svo leikstýra þeim.

Auglýsing

læk

Instagram