today-is-a-good-day

Jólagestir Björgvins 2020 | Heima í stofu hjá þér

„Það gleður okkur að staðfesta að Jólagestir Björgvins fara fram í ár, í fullri stærð, heima í stofu hjá þér, í beinni frá Borgarleikhúsinu, laugardaginn 19. desember kl. 20,“ segir í tilkynningu frá Senu.

Jólagestir láta ekki sitt eftir liggja á krefjandi tímum og hafa unnið hörðum höndum að því undanfarið að finna leiðir til að töfra fram sannan jólaanda í ár, eins og síðastliðin 13 ár. Það tókst og nú verður blásið til allsherjar jólaveislu á landsvísu þar sem einvalið lið söngvara, hljóðfæraleikara, kóra og dansara koma fram, í beinni frá Borgaleikhúsinu. Nú geta allir keypt sæti á fremsta bekk!

Tónleikarnir verða aðgengilegir í gegnum myndlykla Vodafone og Sjónvarp Símans fyrir þau sem vilja horfa í gegnum sjónvarpið. Einnig verður hægt að kaupa streymi hjá Tix.is en þannig er hægt að horfa á tónleikana á næstum hvaða nettengda tæki sem er. Nánari upplýsingar um miðasölu og tæknileg atriði verða kynnt á næstu dögum.

Ekkert verður til sparað frekar en fyrri daginn til að gera upplifunina einstaka og ógleymanlega. Umgjörðin verður engu lík og að sjálfsögðu verða heimsklassagæði á útsendingu, mynd- og hljóðvinnslu.

Ásamt Björgvini kemur fram stórskotalið söngvara:

Ágústa Eva
Bríet
Eyþór Ingi
Gissur Páll
Högni
Logi Pedro
Margrét Eir
Svala

Þau verða dyggilega studd af Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar, Karlakórnum Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarssonar, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og dönsurum úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.

Miðaverð verður still í hóf og einungis þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili þannig öll fjölskyldan getur notið flottustu jólatónleika landsins saman fyrir eitt verð.

FARA Á JÓLAGESTIR.IS

Auglýsing

læk

Instagram