Jólagestir Björgvins 2021

Allt það sem við óskum okkur í ár eru Jólagestir Björgvins, metnaðarfyllstu og skemmtilegustu jólatónleikar landsins. Síðustu 14 ár hefur Björgvin Halldórsson fært okkur jólin með stæl og boðið til sín skærustu söngstjörnum landsins til að töfra fram sannkallaða jólastemningu.

Tónleikarnir í ár fara fram laugardaginn 18. desember í Laugardalshöllinni og hefur Björgvin að vana handvalið landslið söngvara, besta bandið, strengi, kóra, dansara og óvæntar uppákomur. Öll umgjörðin verður eins og áður að sjálfsögðu á heimsmælikvarða.

Gestir Björgvins í ár eru:

 

  • Eyþór Ingi
  • Gissur Páll
  • Högni
  • Jóhanna Guðrún
  • Margrét Rán
  • Stefanía Svavars
  • Svala
  • Sverrir Bergmann


Ásamt þeim koma fram Stórsveit Jólagesta undir stjórn Þóris Baldurssonar, strengjasveit undir stjórn Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Reykjavík Gospel Company undir stjórn Óskars Einarssonar, Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarssonar, Barnakór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og dansarar úr Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar.

Einnig koma fram sigurvegarar í Jólastjörnunni 2021 og Jólalagakeppni Rásar 2. Þættirnir Leitin að Jólastjörnunni verða sýndir í Sjónvarpi Símans en þar geturðu fylgst með upprennandi söngstjörnum Íslands keppa um að verða Jólastjarna ársins.

„Innan skamms tilkynnum allt varðandi miðasöluna, hvenær hún hefst, hvenær forsölur fara fram, verðsvæðin o.s.frv., en póstlista áskrifendur okkar fá allar upplýsingar fyrst, sem og aðgang að forsölum og öðrum sérstökum fríðindum,“ segir í tilkynningu frá Senu Live.

Auglýsing

læk

Instagram