today-is-a-good-day

Jónas Sig. á Sjálandi um verslunarmannahelgina

Jónas Sigurðsson heldur einlæga en öfluga tónleika í tónleikasal Sjálands veitingahúss laugardagskvöldið um Verslunarmannahelgina, 1. ágúst nk. Jónas kemur fram ásamt Ómari Guðjónssyni heimamanni í Garðabæ og tætir í gegnum sín þekktustu lög eins og honum einum er lagið.

Jónas er án efa einn magnaðist tónlistarmaður sinnar kynslóðar hér á Íslandi og eru bæði lögin og textarnir hans til vitnis um það.

Miðaverð 4.900 og forsala á tix.is. Húsið opnar kl 20:00, tónleikar hefjast kl 21:00 og tónleikum lýkur klukkan 23:00.

 

Auglýsing

læk

Instagram