Kona fannst látin í heimahúsi í nótt

Kona um sex­tugt fannst látin í heima­húsi í Hafnar­firði í nótt. Þetta kemur fram í til­kynningu frá lög­reglu.

Konan var látin þegar lögregla kom á vettvang en tilkynning um málið barst lögreglu um hálftvöleytið í nótt. Tveir karlmenn, annar á sextugsaldri og hinn um þrítugt, voru á heimilinu og voru þeir báðir handteknir.

Rannsókn málsins er nú á frumstigi en rannsakað verður hvort mennirnir tveir hafi átt þátt í andláti konunnar. Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins

Auglýsing

læk

Instagram