Kviknaði í samlokugrilli

Tilkynnt var um eldsvoða í íbúð á Ásbrú, á níunda tímanum í morgun. Viðbragðsaðilar frá slökkviliði Brunavarna Suðurnesja og lögreglunni á Suðurnesjum voru kallaðir út.

Eldur hafði komið upp í samlokugrilli, samkvæmt heimildum frá lögreglu á vettvangi. Eldurinn var fljótlega slökktur og íbúðin reykræst.

Þetta kom fram á vef Víkurfrétta

Auglýsing

læk

Instagram