Lestrarkeppni grunnskólanna hófst í gær

Þriðja Lestrarkeppni grunnskólanna hófst í gær og verður fyrirkomulagið með sama hætti og í fyrri keppnum. Keppnin stendur yfir í viku. Það var Eliza Reid, forsetafrú, sem hóf keppnina í Smáraskóla í gær. Sem fyrr gengur keppnin út á að lesa setningar inn í gagnasafn, í gegnum vefinn samrómur.is. Upptökurnar verða svo notaðar til að þróa máltæknilausnir sem kenna tölvum og tækjum að skilja íslensku.

Nemendur, foreldrar og starfsfólk skóla geta lesið inn fyrir sinn skóla. Samrómur hvetur alla til að taka þátt því miklu skiptir að fá framlög frá breiðum hópi og tryggja þannig að tæknin skilji raddir og framburð allra.

Viðtökur við síðustu Lestrarkeppni Samróms fóru fram úr björtustu vonum. Alls tóku um 6.000 einstaklingar þátt fyrir hönd 136 skóla og lásu rúmlega 776 þúsund setningar.  Smáraskóli las allra skóla mest í síðustu keppni eða rúmlega 131 þúsund setningar.Við erum því afar spennt fyrir komandi keppni og vonumst eftir þátttöku sem flestra skóla.

Samrómur er radd gagnasafn á vegum Almannaróms – Miðstöðvar máltækni og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn með söfnum Samróms er að safna raddgögnum sem máltækni lausnir verða byggðar á. Þannig tryggjum við að tölvur og tæki sem við tölum við muni skilja íslenskt talmál.

Auglýsing

læk

Instagram