Loftfimleikasýning GAME ON í Tjarnarbíói

Lauren Charnow, Alice Demurtas og Ástríður Ólafsdóttir skipa lista- og loftfimleikahópinn Kría Aerial Arts. Dagana 30.júni, 1., 10., og 15. júlí klukkan 20:00 verður hópurinn í Tjarnarbíói með sýninguna GAME ON.

GAME ON er gagnvirk loftfimleikasýning þar sem mörk veruleikans og fantasíu eru könnuð. Þremur sögupersónum er fylgt eftir á ferð sinni um sýndarveröld þar sem þær heyja baráttur, lenda í ævintýrum og hitta fyrir magnaðar verur.
GAME ON er klukkustundarlangt verk sem sýnir bæði þokka og styrk, þar sem flytjendurnir munu klifra, dansa og svífa um loftin á glansandi silkislæðum.Ýmsum ólíkum sirkúslistum mun bregða fyrir á sviðinu en þar tvinnast saman dans bæði í lofti og á gólfi ásamt paraakróbatík.

Til að auka á áskorunina verður á sýningunni líkt eftir viðmóti tölvuleiks og áhorfendum boðið að taka þátt í sköpun sögusviðsins með því að velja á milli ólíkra atburðarása. En mun áhorfendum takast að beina söguhetjunum aftur til raunveruleikans eða munu þær festast í viðjum sýndarveruleikans að eilífu?

„Ekki missa af þessu stórkostlega sjónarspili þar sem hver sýning er einstök og atburðarásin getur breyst milli daga. Taktu þátt í að beina persónunum í rétta átt: örlög þeirra eru nú í þínum höndum,“ segir í tilkynningu.

Miðaverð er 4000 krónur og fer miðasalan fram á  tix.is

Auglýsing

læk

Instagram