today-is-a-good-day

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu varar við þjófnaði

Í tilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu segir að töluvert hafi verið um þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og full ástæða sé til að minna fólk á að vera á varðbergi.

Þar er meðal annars um að ræða þjófnaði á reiðhjólum, rafmagnshlaupahjólum og vespum, en auk þess hefur verið töluvert um innbrot í bæði bíla og á byggingarsvæði.

,,Fólk er því hvatt til að geyma hjól og vespur innandyra, ef það hefur tök á, og umráðamenn ökutækja er minntir á að hafa ekki hluti í augsýn, sem kunna að freista þjófa.“

,,Lögreglan ítrekar jafnframt að fólk láti vita um grunsamlegar mannaferðir (taki ljósmyndir ef slíkt er mögulegt) og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í umhverfi þess,“ segir í tilkynningunni.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.

Auglýsing

læk

Instagram