Maður handtekinn eftir falskt útkall

Um klukkan hálf eitt í nótt barst tilkynning um að maður hefði dottið í ánna af Ölfusárbrú.

Voru Björgunarfélag Árborgar, Hjálparsveit skáta í Hveragerði og Björgunarsveitin Björg á Eyrarbakka kallaðar út ásamt lögreglu, slökkviliðsmönnum frá Brunavörnum Árnesinga og sjúkraflutningamönnum af Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Aðgerðastjórn var virkjuð í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi.

Um klukkustund síðar fannst maður í trjárjóðri við leikhúsið á Selfossi skammt ofan brúarinnar. Hann var handtekinn, grunaður um gabb símtal og var hann látinn gista fangageymslur. Þetta segir Frímann Birgir Baldursson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við  sunnlenska.is

Á milli 30 og 40 manns leituðu mannsins og fyrsti bátur var kominn á ána aðeins ellefu mínútum eftir að útkallið barst.

Auglýsing

læk

Instagram