today-is-a-good-day

Björgunarsveitir á leið upp á Vatnajökul eftir neyðarkall

Neyðarkall barst frá neyðarsendi á Vatnajökli á fjórða tímanum í nótt. Björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og allt til austfjarða hafa verið boðaðar til og eru um fimmtíu björgunarsveitarmenn frá níu björgunarsveitum á leið upp á Vatnajökul. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Enn er unnið að því að komast á staðinn þaðan sem neyðar­sendinginn kom en vonir standa til að það takist á næstu klukku­tímum. Fjöldinn allur af sér­hæfðum tækjum og sjálf­boða­liðum sækir því á jökulinn úr öllum áttum á vél­sleðum, breyttum jeppum og snjó­bílum. Svæðis­stjórnir á svæði 1-13-15 skipu­leggja að­gerðir björgunar­sveita,” segir í til­kynningunni.

Mikil veðurhæð er á svæðinu og takmarkað skyggni, sem gerir aðstæður erfiðar.

Auglýsing

læk

Instagram