Maður hand­tekinn tvisvar í Reykja­vík í nótt

Hand­taka þurfti sama manninn tvisvar sinnum í nótt. Maðurinn var hand­tekinn í mið­bæ Reykja­víkur klukkan eitt í nótt grunaður um akstur bif­reiðar undir á­hrifum fíkni­efna en var sleppt þegar töku blóðsýna var lokið.

Seinna um nóttina þurfti lögreglan aftur að hafa afskipti af manninum á skemmtistað í miðbænum. Þar á maðurinn að hafa ógnað fólki með hníf. Í fram­haldi af því var maðurinn vistaður í fanga­klefa yfir nótt.

Auglýsing

læk

Instagram