today-is-a-good-day

Maðurinn sem lést í köfunarslysi í Eyjafirði var erlendur ferðamaður

Maðurinn sem lést eftir köfunarslys í Eyjafirði í gær var erlendur ferðamaður. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var maðurinn vanur kafari sem hafði ferðast um Ísland til þess að kafa.

Sjá einnig:Maður lést í köfunarslysi í Eyjafirði

Þar segir að hann hafi verið í köfunarferð með stórum hópi á vegum ferðaþjónustufyrirtækis á svæðinu. Von er á tilkynningu frá rannsóknarlögreglunni í dag vegna málsins.

Um var að ræða 64 ára gamlan bandarískan karlmann sem skilur eftir sig eiginkonu.

Auglýsing

læk

Instagram