Miðaeigandi á Íslandi hlýtur rétt tæpar 10 milljónir

Það var miðaeigandi í Litháen sem hafði heppnina með sér í Víkingalottó en hann var einn með 1. vinning og fær því vinning upp á rúmlega 826 milljónir.  Tveir skiptu með sér einföldum 2. vinningi og hlýtur hvor þeirra rétt tæpar 10 milljónir, annar miðinn var keyptur í Noregi en hinn á Íslandi, nánar tiltekið í Mini Market í Reykjanesbæ.

Einn var með allar réttar tölur og í réttri röð í Jóker og fær hann 2 milljónir í vinning, miðinn var keyptur í Hagkaup, Skeifunni í Reykjavík.

Auglýsing

læk

Instagram