Mike heldur uppistandssýninguna Birgbiglia í Kaldalóni Hörpu

Mike heldur uppistandssýninguna Birgbiglia í Kaldalóni Hörpu 19. júní.

Mike Birbiglia er uppistandari, sögumaður, leikstjóri, rithöfundur og leikari sem hefur komið fram um allan heim, á stöðum eins og Óperuhúsinu í Sydney og á Broadway.

Sýningarnar hans My Girlfriend’s Boyfriend og Thank God for Jokes gengu vel á Netflix og hann er New York Times metsöluhöfundur eftir að hafa gefið út bókina Sleepwalk with Me and Other Painfully True Stories árið 2010. Sem leikari hafið þið séð hann í þáttum á borð við Inside Amy Schumer, Girls á HBO, Orange Is the New Black og Broad City.

Aðeins 200 númeruð sæti eru í boði, þannig að áhugasamir eru hvattir til að hafa hraðar hendur.

– Almenn miðasala hefst fimmtudaginn 3. desember kl. 11
– Forsala hefst miðvikudaginn 2. desember kl. 11
– Skráning í hana hér: https://senalive.is/postlisti/

Auglýsing

læk

Instagram