Milljónir horfa á Dýrið stikluna

Íslenska kvikmyndin Dýrið vakti gríðarlega athygli þegar hún var frumsýnd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hún fékk verðlaun fyrir frumleika í Un Certain Regard keppninni og erlendir fjölmiðlar kepptust við að ausa hana lofi.

Eftirvænting fyrir frumsýningu hennar fer vaxandi eins og áhorfið á einstaklega vel heppnaða alþjóðlega stikluna sýnir okkur. Á rúmri viku er búið að horfa á stikluna tæplega 1.8 milljón sinnum á Twitter reikningi A24 og 2.6 milljón sinnum á vinsælustu útgáfuna á Youtube til viðbótar. Þá eru ótalin milljón áhorf á Facebook og hundruð þúsund áhorfa á aðrar útgáfur af stiklunni á Youtube:

Þá eru tugir búin að pósta Youtube myndböndum af sér að bregðast við stiklunni, búið að ræða hana á vinsælum kvikmynda bloggum og hlaðvörpum og bókstaflega þúsundir sagt hug sinn á Twitter. Það er því ljóst að Dýrið stiklan er án nokkurs vafa ein allra vinsælasta stikla íslenskrar kvikmyndasögu.
 
Samanburður er vissulega erfiður, því netið, net-menning og net-markaðssetning er enn í örum vexti, en það er samt ekki hægt að líkja viðbrögðunum við stiklu (og plakati) fyrir Dýrið við neina aðra íslenska kvikmynd eða sjónvarpsefni hingað til.

Einnig er gaman að segja frá því að áhorf og viðbrögð við Dýrið stiklunni hefur farið fram úr öllum A24 myndum, þar með talið Midsommer og Lighthouse, sem voru fram til þessa þær A24 myndir sem náð hafa mestri athygli á heimsvísu. En bandaríska framleiðslu-og dreifingarfyrirtækið A24 tryggði sér sýningarrétt að Dýrinu í Norður-Ameríku: https://a24films.com/

Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. 
 

Myndin var tekin upp í Hörgársveit. Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón.

 
Með aðalhlutverk fer sænska leikkonan Noomi Rapace, en hún bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta aðalhlutverk hennar á íslensku. Auk hennar fer Hilmir Snær Guðnason með aðalhlutverk.
 
Dýrið verður frumsýnd í lok september hér á landi og 8.október í Bandaríkjunum (og heitir þar Lamb).
Auglýsing

læk

Instagram