Munu loka öllum Vínbúðunum

Þann 9.mars næstkomandi skellur á verkfall sem mun meðal annars ná til þeirra starfs­manna ÁTVR sem eru fé­lags­menn í Sam­eyki – stétt­ar­fé­lagi í al­mannaþjón­ustu, náist ekki samningar milli BSRB og rík­is­ins. Þetta kemur fram á vef mbl.is

Hefur Áfeng­is- og tób­aksversl­un rík­is­ins gert birgjum sínum viðvart um að mik­il rösk­un geti orðið á starf­semi Vín­búðanna í þess­um mánuði og þeim næsta.

Aðgerðirnar munu leiða til þess að öllum verslunum ÁTVR verður lokað ásamt dreif­ing­armiðstöð sem rek­in er á þess veg­um.

Dagarnir sem um ræðir eru þessir:

9.-10. mars

17.-18. mars

24. og 26. mars

31. mars

1. apríl

15.-25. apríl

Auglýsing

læk

Instagram