Ný tækifæri í grænum iðnaði til umræðu hjá Landsvirkjun og Samtökum iðnaðarins

Landsvirkjun og Samtök iðnaðarins hafa tekið höndum saman og efna til fundar um ný tækifæri í uppbyggingu á grænum orkusæknum iðnaði. Fundurinn verður haldinn í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 24. júní kl. 14-15 og streymt beint. Iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tekur þátt í umræðum.

Á fundinum verður horft til framtíðar og leitast við að svara því hvort Ísland sé reiðubúið að taka á móti nýjum grænum orkusæknum iðnaði líkt og stórum gróðurhúsum, ofurgagnaverum, rafeldsneytisvinnslu eða rafhlöðuverksmiðjum. Varpað verður fram spurningum um hvort við höfum þá innviði sem þarf, hvernig tryggja eigi aðstöðuna, orkuna og samstarf fyrirtækja, ríkisvalds, sveitarstjórna og annarra sem málið snertir.

 Þátttakendur í dagskrá:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu

Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings

Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður hjá atNorth

Sólveig Bergmann, yfirmaður samskipta hjá Norðuráli

 Fundarstjórn:

Magnús Þór Gylfason, forstöðumaður hjá Landsvirkjun

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI

Auglýsing

læk

Instagram