Ný stjórn Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Kosningaþátttaka var 83,06%. Kosið var um sæti formanns og fimm almenn stjórnarsæti. Eitt framboð barst til formanns SI og átta framboð til almennra stjórnarsæta.

Árni Sigurjónsson, Marel, var kosinn formaður með 98,03% greiddra atkvæða.

Þau sem hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára eru:

Arna Arnardóttir, gullsmiður

Halldór Halldórsson, Íslenska kalkþörungarfélagið

Hjörtur Sigurðsson, VBS verkfræðistofa

Jónína Guðmundsdóttir, Coripharma

Vignir S. Halldórsson, húsasmíðameistari

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari

Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál

Magnús Hilmar Helgason, Launafl

Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV

Auglýsing

læk

Instagram