Reykjavíkurmaraþoninu aflýst í ár

Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2021 hefur verið aflýst í ár.

„Þetta er vissulega svekkjandi fyrir hlaupasamfélagið og góðgerðarfélögin. Við getum ekki haldið Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka með færri en 500 í hverju hólfi. Miðað við stöðuna núna og þá óvissu sem er um framhaldið þá lítur ekki út fyrir að fleiri en 100-200 megi koma saman í keppni 18. september. Þetta hefur verið langt ferli og er erfið ákvörðun,”  segir Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR í tilkynningu frá félaginu.

Í tilkynningunni segir einnig að allir skráðir þátttakendur fái gjafabréf sem hægt verði að nota í viðburði ÍBR.

„Þó að ekki sé hægt að halda Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár, er samt hægt að láta gott af sér leiða. Við höfum sett af stað átakið „Hlauptu þína leið“ þar sem við viljum hvetja hlaupara til að hlaupa sjálfir og styrkja í leiðinni góðgerðarfélag að eigin vali á vefnum hlaupastyrkur.is.“

„Í ár hafa safnast um 21 milljón en við viljum gjarnan safna meira fyrir góðgerðarfélögin þar sem við vitum að þetta skiptir þau miklu máli.“

„Við hvetjum hlaupara til að hlaupa sína leið frá 21. ágúst – 20. september og halda áfram að safna áheitum,“ segir að lokum.

 

Auglýsing

læk

Instagram