Samningur undirritaður um fyrsta áfanga máltækniáætlunar

Í dag undirrituðu Almannarómur – Miðstöð um máltækni og rannsóknarhópurinn SÍM (Samstarf um íslenska máltækni) samning um smíði innviða í máltækni fyrir íslensku og fór undirritun fram í Vigdísarstofu í Veröld, húsi Vigdísar.

Í SÍM eru níu fyrirtæki og stofnanir með sérþekkingu á sviði málvísinda og máltækni. Aðilar að SÍM eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Blindrafélagið, Ríkisútvarpið, Creditinfo Fjölmiðlavaktin ehf., Gammatek ehf., Miðeind ehf. og Tiro ehf. Ákveðið var að leita samninga við SÍM um að vinna að þeim rannsóknum sem felast í fyrsta áfanga máltækniáætlunar að undangenginni forkönnun Ríkiskaupa.

Samningurinn, sem er til eins árs, tekur til fyrsta áfanga máltækniáætlunar þar sem megináhersla er lögð á söfnun og vinnslu gagna. Aðrir hlutar samningsins taka til smíði stoðtóla fyrir máltækni, vélrænna þýðinga, málrýni, smíði talgreinis og smíði talgervils. Hugbúnaður, sem verður þróaður sem hluti verkefnisins, verður aðgengilegur með opnum leyfum. Gögn sem verða aðgengileg sem hluti verkefnisins verða einnig háð opnum leyfum eins og framast er unnt. Í samningnum er tekið fram að SÍM muni leggja áherslu á frekara samstarf við atvinnulíf og rannsakendur á sviði máltækni, á Íslandi og á alþjóðavettvangi, í því skyni að hraða þróun máltæknilausna fyrir íslensku. Greiðslur fyrir rannsóknir og þróun á samningstímabilinu munu nema 383 milljónum króna. 

„Við höfum ákveðið að snúa vörn í sókn fyrir tungumálið og þar er að mörgu að hyggja. Máltækniáætlunin og framkvæmd hennar eru meðal mikilvægustu skrefanna sem við stígum nú til að tryggja betur framtíð íslenskunnar,” segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

„Sá tónn sem hér er sleginn í samstarfi háskólasamfélagsins og atvinnulífsins er mikilvægur upptaktur að nýsköpun í máltækni fyrir íslensku. Meginmarkmið máltækniáætlunar og þeirrar framkvæmdaáætlunar sem við höfum sett fram, er að þróa innviði fyrir máltækni sem verða gerðir aðgengilegir fyrirtækjum, stofnunum og almenningi endurgjaldslaust. Jafnframt fjleggjum við áherslu á að leyfiskeðja afurðanna verði skýr, þannig að það verði eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki að nýta lausnirnar sem grunn að vörum og þjónustu fyrir íslenskan neytendamarkað,” segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

„Aðilar innan SÍM hafa undanfarin ár unnið að grunnþróun í máltækni fyrir íslensku og byggt upp þekkingu á sviðinu. Með því að sameinast um þetta stóra verkefni nú, þvert á háskóla, stofnanir og fyrirtæki, verður lagður grunnur að öflugu „máltæknivistkerfi” fyrir íslensku, þar sem gögn og kjarna-hugbúnaður verða aðgengileg á einum stað,“segir Björk Nikulásdóttir, verkefnastjóri SÍM

Um Almannaróm – Miðstöð um máltækni

Almannarómur starfrækir miðstöð um máltækni á grundvelli samnings við Mennta- og menningarmálaráðuneytið en samkvæmt honum er Almannarómi m.a. falið að gera samninga við þá aðila sem falin verður framkvæmd einstakra þátta máltækniáætlunar, og að fylgja eftir framkvæmd þeirra.

Auglýsing

læk

Instagram