Secret Services / Leyniþjónustan

Einkasýning Rúnars Arnar Jóhönnu Marinóssonar, Secret Services / Leyniþjónustan, framlengt til 6. desember. 
Vegna heimsfaraldurs þá hefur Midpunkt ákveðið að lengja opnunar tíma sýningarinnar Secret Services eftir listamanninn Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson.
 
Sýningin Leyniþjónustan eða Secret Services er um skáldaða óopinbera stofnun, eins konar sálríkislögreglu, sem gegnir því hlutverki að rannsaka og útrýma óeðlilegum, dularfullum, yfirskilvitlegum, undarlegum og óstýrilátum fyrirbærum. Hvað flokkast sem slíkt getur verið erfitt að segja til um en hér virðast einhverskonar draugar vera á kreiki. Draugar geta átt sér ýmsan mismunandi uppruna, gleymd minning, miseftirminnileg atvik, slæm hugmynd, óþörf manneskja, jörðuð tilfinning. En óvíst er hvort þörf sé á að örvænta, Leyniþjónustan tekst á við hið torskiljanlega svo við þurfum ekki að gera það. Á þessari sýningu má líta niðustöðulausar rannsóknir hins óopinbera og þar eru til sýnis ýmis sönnunargögn, tæki og tól sem stofnunin hefur sankað að sér og notað í gegnum tíðina.
Sannleikurinn er úti.
 
Midpunkt er opið um helgar milli 14-17 en einnig er hægt að bóka tíma með listamanni til að skoða sýninguna utan opnunartíma. 
 
Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson er listamaður, hann útskrifaðist með BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2016 og hefur síðan þá sýnt á ýmsum samsýningum á Íslandi og erlendis, en þetta er hans fyrsta einkasýning. Í verkum sínum notar hann ýmsa miðla til að skoða hinar ýmsu tilraunir manneskjunar til að skilja og hafa stjórn á veruleika  sínum og annara, bæði innri og ytri.
Auglýsing

læk

Instagram