today-is-a-good-day

Sigurganga Rúriks og Renötu heldur áfram!

Rúrik Gíslason, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, keppir í þýsku útgáfunni af Let´s Dance. Þættirnir eru sýndir á RTL-sjónvarpsstöðinni og hófst þáttaröðin 26. febrúar.

Dansfélagi Rúriks er atvinnudansarinn Renata Lusin og eru þau að slá í gegn í þáttunum. Í gærkvöldi dönsuðu þau Paso Doble og fengu fullt hús stiga og mikið lof dómara. Þau tryggðu sér um leið sæti í undanúrslitum keppninnar.

Hér má sjá myndband af atriði þeirra frá því í gærkvöldi

Auglýsing

læk

Instagram