today-is-a-good-day

Skapandi verkefni í húsnæði borgarinnar

Reykjavíkurborg býður húsnæði til leigu í Gufunesi, Bryggjuhverfi og Skerjafirði fyrir áhugaverð skapandi verkefni.  Til ráðstöfunar eru rúmlega 9 þús. fermetrar sem ætlunin er að nýta sem hluta af viðspyrnu vegna erfiðs efnahagsástands í kjölfar covid-19 faraldursins og eru ekki í notkun í dag eða eru að losna.  Þetta kemur fram á vef reykjavik.is

Hverjir geta fengið húsnæði?

Við val á starfsemi í húsin verður sérstök áhersla lögð á skapandi greinar, að byggja upp og efla nýjar atvinnugreinar og samfélagsleg verkefni. Leitast verður eftir því að starfsemin falli vel að nærumhverfinu og gæði það lífi.  Kvikmyndagerð og starfsemi henni tengd hefur byggst upp í Gufunesi á síðustu árum og önnur listsköpun hefur einnig fest þar rætur.   Vinnuhópur Reykjavíkurborgar metur umsóknir og velur samstarfsaðila.  Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að fara í samstarf við hvaða umsækjanda sem er byggt á mati vinnuhópsins eða hafna öllum.

Hvernig er ástand húsnæðisins?

Húsin sem um ræðir eru fjölbreytt, í misjöfnu ástandi og verða afhent eins og þau eru.  Reykjavíkurborg leggur ekki fjármagn til endurbóta og allar endurbætur leigutaka á húsnæðinu verða eign Reykjavíkurborgar að samningstíma loknum.  Áhugasömum er bent á að skoða vandlega kosti húsanna og galla áður en til umsóknar kemur.

Hvað er húsnæðið leigt í langan tíma?

Hugmyndafræði verkefnisins er að auglýsa eftir tímabundnum leigjendum á meðan viðkomandi svæði eru í skipulags- og uppbyggingarferli sem þó er hugsað til nokkurra ára.  Almennt verður gert ráð fyrir ótímabundnum leigusamningi með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti en möguleiki verður á að gera samning til skemmri eða lengri tíma..

Hvert er leiguverðið?

Gengið er út frá því að umsækjendur komi með tillögu að leiguverði og leigutíma í umsóknum sem metnar verða sérstaklega af vinnuhópi borgarinnar.

Hvenær get ég skoðað húsnæðið?

Boðið verður upp á skoðunarferðir um húsakynni miðvikudaginn 10. júní

  • Skerjafjörður kl. 14:00
  • Bryggjuhverfi kl. 15:30
  • Gufunes kl. 17:00

Áhugasamir eru beðnir um að skrá þátttöku í skoðunarferð.

Hvernig sæki ég um húsnæði?

Opnað verður fyrir umsóknir 5. júní hérna á síðunni með til þess gerðu umsóknareyðublaði. Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2020.

Hvar finn ég nánari upplýsingar um húsnæðið?

Rúv fjallaði um Gufunes og tók viðtal við Dag B. Eggertsson borgarstjóra um verkefnið og er hægt að nálgast þáttinn hér.

Vinsamlega beinið fyrirspurnum á netfangið skapandi@reykjavik.is eða hringið í símaver Reykjavíkurborgar, s. 411 11 11.

Auglýsing

læk

Instagram