Taldi vinninginn vera 27 þúsund en reyndist vera 27 milljónir

Þeir tveir miðahafar sem skiptu á milli sín fjórföldum Lottópotti þann 7. ágúst síðastliðinn hafa nú gefið sig fram og skipta þeir á milli sín 54,8 milljónum.

„Hún var heldur betur hissa og undrandi frúin sem kíkti til okkar í Laugardalinn í gær. Meðferðis hafði hún Lottómiða sem maðurinn hennar hafði beðið hana um að koma til okkar og sækja 27 þúsund króna vinninginn sem hann taldi að á honum væri,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

„Maðurinn hafði farið með miðann á sölustað til að láta skoða hann en bæði hann og starfsmaðurinn lásu upphæðina svona skakkt. Miðinn var bara settur aftur í veskið og beðið eftir næstu ferð í bæinn.“

Hinn vinningsmiðinn var keyptur á N1 á Þingeyri en eigandi hans hafði komið rétt fyrir lokun, keypt sér sjeik og ákveðið að taka einn 10 raða miða með. Daginn eftir kom hann aftur í söluskálann, til að kaupa sér sjeik, og var þá spurður hvort hann hefði hugsanlega keypt vinningsmiðann og kom í ljós að sú var raunin.

„Hann sagði alveg ljóst í hvað þessi vinningur færi, hann ætlar að kaupa sér íbúð, og kannski einn sjeik til,“ segir í tilkynningunni.

Auglýsing

læk

Instagram