Þriðji vinningur keyptur í Appinu

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó en einn var með 3. vinning og fær hann rúmlega 2,1 milljón í vinning.  Miðinn var keyptur í Appinu.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en sjö miðahafar voru með 2. vinning og fá þar með 100 þúsund krónur.  Þrír miðanna eru í áskrift, tveir voru keyptir á heimasíðunni lotto.is, einn í appinu og einn í N1 á Hvolsvelli.

Auglýsing

læk

Instagram