Þrír eru látnir eftir eldsvoðann í gær

Þrír eru látnir og tveir eru á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu í Reykjavík í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu.

Tveir voru handteknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu, en síðan sleppt eftir skýrslutökur, og einn er í haldi hennar í þágu rannsóknarinnar, en kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur enn fremur verið kölluð til vegna málsins.

Rannsókn lögreglu á brunavettvangi hófst formlega eftir að slökkviliðið hafði lokið þar störfum um hálffjögurleytið í nótt.

Ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum sem er í haldi lögreglu mun liggja fyrir síðar í dag.

Tilkynning um eldinn barst kl. 15.15 og hélt fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á staðinn, en aðstæður á vettvangi voru mjög erfiðar. Slökkvistarfið tók töluverðan tíma, en mikinn reyk lagði frá húsinu og voru íbúar í nágrenninu beðnir um að loka hjá sér gluggum.

Auglýsing

læk

Instagram