Þrír skiptu með sér hinum al-íslenska þriðja vinningi

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þessa vikuna í Víkingalottó en þrír skiptu með sér hinum al-íslenska þriðja vinningi og fær hver þeirra rúmlega 655 þúsund krónur í sinn hlut.

Miðarnir voru keyptir Hagkaupum á Akureyri, Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík og N1 í Mosfellsbæ.

Enginn var með 1. vinning í Jóker en þrír hlutu 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur að launum. Tveir miðanna eru í áskrift, en sá þriðji var keyptur í Öldunni á Vopnafirði.

Auglýsing

læk

Instagram