Þrír voru með bónusvinninginn

Enginn var með allar tölurnar réttar í Lottó útdrætti vikunnar og verður potturinn 4faldur í næstu viku. Má gera ráð fyrir að hann verði rúmlega 50 milljónir króna.  Þrír voru með bónusvinninginn og fá þeir rúmlega 220 þúsund í vinning, tveir miðanna voru keyptir á lotto.is en einn er í áskrift.

Níu miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund kall í vinning hver, miðana keyptu þeir á eftirtöldum stöðum; Olís við Sæbraut í Reykjavík, Olís við Ánanaust í Reykjavík og Olís á Neskaupstað.  Þrír notuðu Appið til að kaupa sér miða og þrír eru í fastri áskrift og missa því ekki af vinningi.

Auglýsing

læk

Instagram