Tilnefningar til Grímunnar 2020

Tilnefningar til Grímunnar fyrir leikárið 2019-20 voru tilkynntar í dag. Var það Þjóðleikhúsið sem hlaut flestar tilnefningar eða 41 talsins og Borgarleikhúsið alls 14.

Hér að neðan má sjá alla sem tilnefndir eru til Grímunnar fyrir leikárið 2019-2020.

Sýning ársins

Atómstöðin – endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þorleifsdóttur, byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Engillinn eftir Finn Arnar Arnarson og Þorvald Þorsteinsson Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Eyður eftir Marmarabörn Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Spills eftir Rósu Ómarsdóttur Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek

Þel eftir Katrínu Gunnarsdóttur Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Leikrit ársins

Atómstöðin – endurlit eftir Halldór Laxness Halldórsson og Unu Þorleifsdóttur, byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Engillinn eftir Finn Arnar Arnarson og Þorvald Þorsteinsson Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Eyður eftir Marmarabörn Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Helgi Þór rofnar eftir Tyrfing Tyrfingsson Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Kartöflur eftir Arnar Geir Gústafsson, Birni Jón Sigurðsson, Halldór Eldjárn, Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur og Ýri Jóhannsdóttur Sviðsetning – CGFC í samstarfi við Borgarleikhúsið

Leikstjóri ársins 2020

Finnur Arnar Arnarson Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Kristín Jóhannesdóttir Eitur Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Marmarabörn Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Una Þorleifsdóttir Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Vignir Rafn Valþórsson Rocky! Sviðsetning – Sómi þjóðar í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikari ársins 2020 í aðalhlutverki

Björn Thors Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Eggert Þorleifsson Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Hilmar Guðjónsson Helgi Þór rofnar Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Hilmir Snær Guðnason Eitur Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Sveinn Ólafur Gunnarsson Rocky! Sviðsetning – Óskabörn ógæfunnar í samstarfi við Tjarnarbíó

Leikari ársins 2020 í aukahlutverki

Hilmir Snær Guðnason Vanja frændi Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Hjalti Rúnar Jónsson Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist Sviðsetning – Leikhópurinn Umskiptingar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar

Hjörtur Jóhann Jónsson Helgi Þór rofnar Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Oddur Júlíusson Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Pálmi Gestsson Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Leikkona ársins 2020 í aðalhlutverki

Ebba Katrín Finnsdóttir Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Katrín Gunnarsdóttir Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Lára Jóhanna Jónsdóttir Shakespeare verður ástfanginn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Nína Dögg Filippusdóttir Eitur Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Þuríður Blær Jóhannsdóttir Helgi Þór rofnar Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Leikkona ársins 2020 í aukahlutverki

Arndís Hrönn Egilsdóttir Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Birgitta Birgisdóttir Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Ilmur Kristjánsdóttir Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Katrín Halldóra Sigurðardóttir Vanja frændi Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Kristbjörg Kjeld Er ég mamma mín? Sviðsetning – Kvenfélagið Garpur í samstarfi við Borgarleikhúsið

Leikmynd ársins 2020

Eva Signý Berger Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Finnur Arnar Arnarson Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Gretar Reynisson leikmynd og Elmar Þórarinsson myndband Helgi Þór rofnar Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Guðný Hrund Sigurðardóttir Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Mirek Kaczmarek Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Búningar ársins 2020

Eva Signý Berger Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Guðný Hrund Sigurðardóttir Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Júlíanna Lára Steingrímsdóttir Endurminningar Valkyrju Sviðsetning – Endurnýttar væntingar í samstarfi við Tjarnarbíó

Mirek Kaczmarek Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Þórunn María Jónsdóttir Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Lýsing ársins 2020

Björn Bergsteinn Guðmundsson Vanja frændi Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Halldór Örn Óskarsson Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Hákon Pálsson Spills Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek

Kjartan Þórisson Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Ólafur Ágúst Stefánsson Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Tónlist ársins 2020

Baldvin Þór Magnússon Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Gísli Galdur Þorgeirsson Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Gunnar Karel Másson Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Pétur Ben Brúðumeistarinn Sviðsetning – Brúðuheimar í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Pétur Ben og Elvar Geir Sævarsson Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Hljóðmynd ársins 2020

Aron Þór Arnarsson, Gísli Galdur Þorgeirsson og Kristinn Gauti Einarsson Atómstöðin – endurlit Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Baldvin Þór Magnússon Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Gunnar Karel Másson Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Elvar Geir Sævarsson og Kristján Sigmundur Einarsson Engillinn Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Nicolai Hovgaard Johansen Spills Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenverkplaats Pianofabriek

Söngvari ársins 2020

Eyrún Unnarsdóttir Brúðkaup Fígarós Sviðsetning – Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Karin Thorbjörnsdóttir Brúðkaup Fígarós Sviðsetning – Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Rúnar Kristinn Rúnarsson Vorið vaknar Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Valgerður Guðnadóttir Mamma Klikk Sviðsetning – Gaflaraleikhúsið

Þóra Einarsdóttir Brúðkaup Fígarós Sviðsetning – Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Dans – og sviðshreyfingar ársins 2020

Ásgeir Helgi Magnússon og Cameron Corbett Endurminningar Valkyrju Sviðsetning – Endurnýttar væntingar í samstarfi við Tjarnarbíó

Hrefna Hallgrímsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir Brot af því besta með Skoppu og Skrítlu Sviðsetning – Skrítl ehf.

Katrín Gunnarsdóttir Brúðkaup Fígarós Sviðsetning – Íslenska óperan í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Lee Proud Vorið vaknar Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Marmarabörn Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Barnasýning ársins 2020

Galdragáttin og þjóðsagan sem gleymdist eftir Leikhópinn Umskiptinga; Birna Pétursdóttir, Jenný Lára Arnórsdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason Sviðsetning – Leikhópurinn Umskiptingar í samstarfi við Leikfélag Akureyrar

Gosi, ævintýri spýtustráks eftir Ágústu Skúladóttur, Karl Ágúst Úlfsson og leikhópinn eftir sögu Carlo Collodi Sviðsetning – Borgarleikhúsið

Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner Sviðsetning – Daldrandi ehf

Mamma Klikk eftir Björk Jakobsdóttur Sviðsetning – Gaflaraleikhúsið

Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag eftir Ævar Þór Benediktsson Sviðsetning – Þjóðleikhúsið

Dansari ársins 2020

Elín Signý W. Ragnarsdóttir Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Katrín Gunnarsdóttir Eyður Sviðsetning – Marmarabörn í samstarfi við Þjóðleikhúsið

Rósa Ómarsdóttir Spills Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenwerkplaats Pianofabriek

Shota Inoue Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Sigurður Andrean Sigurgeirsson Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Danshöfundur ársins 2020

Rósa Ómarsdóttir Spills Sviðsetning – Rósa Ómarsdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó, Reykjavík Dance Festival og Kunstenverkplaats Pianofabriek

Katrín Gunnarsdóttir Þel Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Elina Pirinen Rhythm of Poison Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn

Sproti ársins 2020

Fjöllistahópurinn Endurnýttar væntingar fyrir Endurminningar Valkyrju. Með þessari dragrevíu tókst hópnum að glæða sviðslistir enn meiri fjölbreytileika, varpa skæru glimmerljósi á jaðarinn og gera óhefðbundnu listformi hátt undir höfði.

Reykjavík Dance Festival fyrir að helga hátíðina á þessu leikári öllum þeim sem ekki hafa átt kastljósið á sviði. RDF afhenti ýmsum hópum eins og börnum, eldri borgurum, unglingum, fötluðum og konum, vettvang hátiðarinnar og studdi þau í að skapa ný sviðslistaverk á sínum forsendum, með sinni eigin sýn á samfélagið.

Listhópurinn Huldufugl fyrir verkið „Kassinn“, þar sem leikhúsi og sýndarveruleika er blandað saman á frumlegan og skemmtilegan hátt og áhorfandinn er gerður að miðpunkti sýningarinnar.

Reykjavík Ensemble International Theatre Company fyrir að skapa spennandi vettvang fyrir sviðslistafólk af erlendum uppruna sem býr á Íslandi og hefur átt erfitt með að koma list sinni á framfæri. Á þessum nýja vettvangi gefst íslenskum sviðslistamönnum jafnframt tækifæri til að eiga í skapandi samskiptum við listamenn með annars konar bakgrunn og reynslu.

Sviðslistafólk á Íslandi fyrir sitt óeigingjarna framlag á tímum Covid. Fyrir að standa vaktina þrátt fyrir allt, halda listinni lifandi og næra þjóðina þegar hún þurfti mest á því að halda.

 

Auglýsing

læk

Instagram