Tóku á móti dreng í sjúkra­bíl fyr­ir utan fæðing­ar­deild­ina

Sjúkra­flutn­inga­menn tóku á móti dreng í sjúkra­bíl á lóð Land­spít­al­ans í Reykja­vík um klukk­an þrjú í dag.

Vakt­haf­andi slökkviliðsmaður sagði í samtali við Mbl að um klukk­an hálfþrjú hafi slökkviliðinu borist til­kynn­ing um konu sem var kom­in í hríðir og stutt á milli þeirra.

„Við treyst­um henni þó til að fara inn í bíl og bár­um hana því inn í sjúkra­bíl­inn.“

Drengnum lá þá mikið á að koma í heiminn að sjúkraflutningamenn tóku á móti honum á bíla­stæði fæðing­ar­deild­ar­inn­ar. Móður og barni heilsast vel að sögn vakt­haf­andi slökkviliðsmanns.

Auglýsing

læk

Instagram