Tveir unnu 100 þúsund krónur

Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út í útdrætti EuroJackpot að þessu sinni, en sjö skiptu með sér 3. vinningi og hlýtur hver þeirra rétt rúmar 16 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Eistlandi, Noregi, Finnlandi og þrír í Þýskalandi.

Tveir miðahafar voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver í vinning. Miðarnir voru báðir keyptir á heimasíðu lotto.is.

Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.691.

Auglýsing

læk

Instagram