|
Uppistandið með Trevor Noah sem átti að fara fram 8. maí næstkomandi í Laugardalshöll hefur verið fært til föstudagsins 6. maí 2022, vegna útbreiðslu COVID-19 vírussins og afleiðinga hans. Miðar á viðburðinn gilda sjálfkrafa áfram á nýju dagsetninguna og miðahafar þurfa ekkert að aðhafast. Ef þessi nýja dagsetning hentar ekki geta miðahafar óskað eftir endurgreiðslu fyrir 26. apríl með því að senda beiðni á info@tix.is. Allir miðahafar hafa nú þegar fengið póst um málið. „Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi breyting kann að valda en um leið þökkum við fyrirfram fyrir þolinmæðina og skilninginn,“ segir í tilkynningu frá Senu. |
Uppistandi Trevor Noah frestað
læk
Tengt efni
Annað áhugavert efni
Auglýsing