Vetrarhátíðin Iceland Winter Games

Vetrarhátíðin Iceland Winter Games verður haldin á Akureyri dagana 20. til 22. mars næstkomandi en um alþjóðlega vetraríþróttahátíð er að ræða.

Þetta er þriggja daga vetrar- og útivistarhátíð sem haldin er á Akureyri í sjötta sinn í ár.

Aðalviðburður leikanna í ár verður keppni á snjóskautum, en keppt verður í þrem greinum innan þess; Bonefight, Freestyle og Red Bull run. Bonefight keppnin er liður í heimsmeistaramóti á snjóskautum og eins og staðan er í stigagjöfinni í dag er mjög líklegt að það verði slagur á milli Akureyringa um heimsmeistaratitilinn í kvennaflokki en þær Katrín Karítas Viðarsdóttir og Laufey Anna Egilsdóttir eiga báðar mikla möguleika á titlinum. Ef svo verður gæti Ísland orðið fyrsta landið til þess að eiga heimsmeistara í öllum flokkum á snjóskautum. Fyrir eiga Akureyringar tvo fyrrum heimsmeistara Ísak Andra Bjarnason, árið 2018 í Bonefight og Inga Frey Sveinbjörnsson sem var þrefaldur heimsmeistari í Freestyle árin 2015, 2016 og 2017.

Í Hlíðarfjalli verður vélsleðaspyrna Ey-Lív á sínum stað og verða þar samankomnir allir flottustu vélsleðar landsins. Einnig verður þar haldið Fjórkrossmót Hjólreiðafélags Akureyrar.

Í fyrsta sinn í ár verður fjölskyldudagur í Kjarnaskógi á sunnudeginum. Meðal viðburða verða snjókarlakeppni, rafmagnshjólakynning og samhjól, gönguskíðakynning og skíðaskotfimi, brauðbakstur og poppað yfir eldi og skátarnir verða með kynningu á sínu starfi og viðburði.

Auglýsing

læk

Instagram