Víðast hvar ófært á landinu

Appelsínugul viðvörun er í gildi á öllu landinu.

Víða eru vegir lokaðir, sem dæmi um Hellisheiði, Þrengsli, Suðurstrandarveg sem og Mosfellsheiði. Einnig er lokað um Kjalarnes, Holtavörðuheiði og Fróðárheiði. Helstu leiðir eru ófærar á Norðausturlandi og verð það í dag. Ófært er á Vestfjörðum sem og á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði. Ekkert ferðaveður er á Suðurlandi, þjóðvegurinn er lokaður undir Eyjafjöllum, í uppsveitum og einnig í Öræfum.

Frost er 2 til 10 stig, kaldast fyrir norðan. Hlýna tekur þegar líður á daginn og búist er við að opnað verði á einhverjum vegum seinnipartinn í dag.

Það hvessir aftur á morgun, en þá gengur í suðvestan 15-23 m/s með skúrum og síðar éljum.

Auglýsing

læk

Instagram