today-is-a-good-day

XXX Rottweiler, Ragga Gísla, JóiPéxKróli og fleiri á Þjóðhátíð

Það styttist í Þjóðhátíð í Eyjum og eftirvæntingin að mælast í hæstu hæðum. Dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri og heldur áfram að hlaða utan á sig einstöku tónlistarfólki.
 
XXX Rottweiler, JóiPéxKróli, Sprite Zero Klan, Hipsumhaps og Háski. 
 
Einnig er dagskrá kvöldvökunnar á sunnudagskvöldinu fullmótuð / Halldór Gunnar, Fjallabróðir með meiru, stýrir henni að venju ásamt Sverri Bergmann og í hópinn bætast Ragga Gísla, Pálmi Gunnars, Guðrún Árný og Klara Elías ásamt Jóhönnu Guðrúnu sem var búið að tilkynna. 
Dagskráin á Þjóðhátíð:
Bríet – Aron Can – FM95Blö – DJ Muscleboy – Emmsjé Gauti – Aldamóta tónleikarnir – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – Bandmenn & Stuðlabandið
Í næstu viku verða tilkynntir enn fleiri listamenn.
 
Það eru Tuborg, Pepsi Max, Red Bull og FM957 sem færa landsmönnum Þjóðhátíð í Eyjum og er miðasala í fullum gangi á https://dalurinn.is/
 
Í fyrsta skipti verður boðið upp á lifandi streymi frá Brekkusöngnum í samvinnu við Senu live frá Brekkusöngnum og geta landsmenn því upplifað Brekkusönginn heima í stofu í gegnum netið eða myndlykla Vodafone og Símans: https://senalive.is/vidburdir/brekkusongur/
Auglýsing

læk

Instagram