Amber Rose og Kim Kardashian birta mynd af sáttafundi, friðarviðræður í Hollywood

Myndin hér fyrir neðan þykir söguleg.

Þetta er hvorki meira né minna en fyrsta skrásetningin á meintum friðarviðræðum Kim Kardashian og Amber Rose eftir áralangan óvinskap sem hófst þegar Kardashian á að hafa stungið undan Rose, sem var áður með rapparanum Kanye West, eiginmanni og barnsföður Kim Kardashian.

View this post on Instagram

Tea anyone?

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on

 

Kim og Amber birtu báðar myndina í morgun

Kim lét skilaboðin: „Tea anyone?“ eða „Te, einhver?“ fylgja myndinni á meðan Amber skrifaði einfaldlega: „Swingers“.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum telja þær stöllur séu að reyna að binda endi á óvinskapinn en lítið benti til þess að það myndi gerast á dögunum þegar Kanye West deildi við rapparann Wiz Khalifa og Amber Rose blandaði sér í það með eftirminnilegum hætti.

Sjá einnig: Hlutir sem Kanye West fílar í rúminu samkvæmt textunum hans

Deilur Kim og Amber hófust árið 2012 þegar sú síðarnefnda kallaði Kim hjónadjöful og sagði að hún væri ástæðan fyrir sambandsslitum hennar og Kanye West. Kim hefur ekki tjáð sig um Amber í gegnum tíðina en systur hennar og Kanye hafa verið dugleg við að kasta olíu á eldinn og í raun viðhalda deilunum.

Kanye baðst þó á dögunum afsökunar á því að hafa dregið son Amber Rose og Wiz Khalifa inn í rifrildi sitt við rapparann og nú virðast Kim og Amber ætla að sættast.

En hvað gerist í næsta þætti af Bílastæðavörðunum?

Auglýsing

læk

Instagram