Arna Ýr klæddist rosalegum víkingastríðsmannabúningi á sviðinu í Miss Universe

Arna Ýr Jónsdóttir, Miss Universe Iceland 2017 er þessa dagana stödd í Las Vegas í Bandaríkjunum þar sem hún tekur þátt í Miss Universe fyrir Íslands hönd. Í gærkvöldi var svokallað „National Custome“ kvöld fram þar sem Arna mætti sem víkingastríðsmaður og vakti mikla athygli en hún var með exi og hrútshöfuð á höfðinu. Arna sýndi afraksturinn á Instagram.

Miss Universe verður krýnd við hátíðlega athöfn næstkomandi sunnudag en Arna hefur verið í Las Vegas í rúma viku. Þar hefur lent í ýmsum ævintýrum og verið dugleg að leyfa fylgjendum sínum að fylgjast með á Instagram. Í vikunni lenti Arna t.d. í því að hlaupa óvart fimm mílur þegar hún ætlaði að hlaupa fimm kílómetra

Auglýsing

læk

Instagram