today-is-a-good-day

Bæjarstjóri Akraness boðar verklagsreglur í notkun baðfatnaðar í sundlaugum bæjarins

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, segir ekkert annað í stöðunni en að setja verklagsreglur um notkun baðfatnaðar í sundlaugum bæjarins. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Regínu.

Sjá einnig: Berbrjósta stelpu vísað upp úr sundlaug á Akranesi: „Við vorum allar mjög hissa“

Diljá Sigurðardóttur var í gær vísað upp úr Jaðarsbakkalaug á Akranesi fyrir það eitt að vera ber að ofan. Í frétt Nútímans um málið kom fram að Diljá hafi neitað að yfirgefa sundlaugina en baðvörðurinn sagðist vera að bregðast við kvörtun.

Baðvörðurinn brást ekki vel við ábendingum um að karlmennirnir á svæðinu væru berir að ofan og spurði hvort þær ætluðu virkilega að taka þessa umræðu. Þsagði hún að það væri ekki Free the Nipple-dagurinn áður en hún gekk í burtu.

Regína segir á Facebook-síðu sinni að sér hafi fundist leitt að heyra af uppákomunni. „Það er ekkert annað í stöðunni en að setja verklagsreglur um notkun baðfatnaðar í sundlaugum bæjarins til að starfsfólkið sé ekki sett í þá aðstöðu að meta hvað má og hvað ekki,“ segir hún.

Einu sinni verður allt fyrst.

Hörður Kári Jóhannesson, forstöðumaður íþróttamannvirkja á Akranesi, sagði í samtali við Vísi að starfsfólk sundlaugarinnar hafi ekki lent í svipuðu átviku áður.

Hann sagði að óskrifuð meginregla í lauginni sé að konur þurfi að klæðast topp en að ljóst sé að fara þurfi yfir það hvaða stefnu sundlaugin hyggst taka í málinu.

„Við munum athuga hvernig stefnan er í öðrum sundlaugum og þá verður tekin ákvörðun um hvaða línu við tökum í þessu máli,“ sagði Hörður í samtali við Vísi.

Auglýsing

læk

Instagram