Beck elskar ennþá Kanye West

Skoðanir Kanye West hafa engin áhrif á Beck sem segist ekki geta höfðað til allra.

Kayne West stökk upp á sviðið á Grammy-verðlaununum í gær þegar Beck tók á móti verðlaununum fyrir plötu ársins. West sagði í kjölfarið að hann verði kunna að meta list. „Beyoncé átti að fá þessi verðlaun,“ sagði hann.

 

Beck lætur skoðanir Kanye ekki á sig fá segist segir í viðtali við Us Weekly að hann elski ennþá Kanye West og sem hann lítur á sem snilling. „Það er ekki hægt að höfða til allra.“

Uppákoman var ekki ósvipuð þeirri sem átti sér stað á MTV-myndbandaverðlaununum árið 2009 þegar Taylor Swift tók við verðlaununum fyrir myndband ársins. Beyoncé var einnig tilnefnd í sama flokki þá.

Við munum eftir þessu:

Kanye sagði ekkert þegar hann stökk upp á svið til Beck. Hann sagði í viðtali eftir hátíðina að hann vildi ekki leggja dóttur sína í hættu:

„En ég er hér til að berjast fyrir sköpun. Það er ástæðan fyrir því að ég sagði ekkert í kvöld. En þið vissuð öll hvað þetta þýddi þegar Ye fór upp á svið,“ sagði „Ye“.

Auglýsing

læk

Instagram